logo-for-printing

10. september 1998

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok júlí 1998 og til samanburðar í lok desember 1997 ásamt breytingum í mánuðinum og frá áramótum.

 Gjaldeyrisforði Seðlabankans lækkaði um rúma 2,9 milljarða króna í júlí og nam í lok mánaðarins 30,4 milljörðum króna (jafnvirði 426,6 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Lækkunin á rætur að rekja til endurgreiðslu ríkissjóðs á erlendum lánum. Erlendar skammtímaskuldir bankans eru óverulegar en þær hækkuðu um 89 millj. í mánuðinum.

 Á gjaldeyrismarkaði námu hrein gjaldeyriskaup Seðlabankans í júlí 3,1 milljörðum króna. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, stóð nánast í stað í júlímánuði.

 Seðlar og mynt í umferð jukust í mánuðinum um 0,8 milljarð og hafa þar með aukist um tæplega 1,1 milljarð frá áramótum.
 
 Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum minnkaði í júlí um 2,4 milljarða króna og er þá miðað við markaðsverð. Eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs minnkaði um 1 milljarð og ríkisbréfaeign stóð nokkurn veginn í stað. Ríkisvíxlaeign dróst saman um 1,3 milljarða króna og nam í mánaðarlok 1,8 milljarði króna. 

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 2,4 milljarða króna í júlí en nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 6,1 milljarð króna og voru jákvæðar um 6,1 milljarð króna í lok júlí sem þýðir að innstæður ríkisins í bankanum námu lægri fjárhæð en brúttókröfur hans á ríkið. Grunnfé bankans hækkaði um 4,2 milljarða króna í mánuðinum og nam 26,0 milljörðum króna í lok hans.

 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Nr. 43/1998
10. ágúst 1998

Til baka