logo-for-printing

03. desember 1997

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok nóvember 1997 og til samanburðar í lok síðasta árs ásamt breytingum í mánuðinum og frá ársbyrjun til loka nóvember.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,8 milljarða króna í nóvember og nam í lok mánaðarins 28,9 milljörðum króna.
Á gjaldeyrismarkaði námu nettó gjaldeyriskaup Seðlabankans í nóvember rúmum 1 milljarði króna. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði í nóvember um 1,3%.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum lækkaði í nóvember um tæpa 1,3 milljarða króna og er þá miðað við markaðsverð. Eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs jókst um rúma 0,5 milljarða króna en ríkisbréfaeignin lækkaði um 0,1 milljarð króna. Ríkisvíxlaeignin lækkaði um 1,7 milljarða króna og nam í mánaðarlok rúmum 3,2 milljörðum króna. Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,3 milljarða króna í nóvember en nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um tæplega 1,2 milljarða króna og námu tæpum 7 milljörðum króna í mánaðarlok. Grunnfé bankans lækkaði um 2 milljarða króna og nam 16,4 milljörðum króna í lok nóvember.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Nr. 34/1997
3. desember 1997

Til baka