logo-for-printing

Raungengi

08. nóvember

Október 2023

Vísitala raungengis íslensku krónunnar var 92,4 stig í október sl. og lækkaði um 1,1% miðað við mánuðinn þar á undan. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 3,5% hærri í október sl. samanborið við sama mánuð árið 2022.

Á þriðja ársfjórðungi 2023 var vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags 93,7 stig (2005=100) sem er 3,8% hækkun miðað við annan ársfjórðung ársins 2023.

Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs launakostnaðar var 97,0 stig á öðrum ársfjórðungi 2023 (2005=100), hækkaði um 9,6% miðað við fyrsta ársfjórðung 2023 – (vísitala raungengis á mælakvarða hlutfallslegs launakostnaðar á þriðja ársfjórðungi 2023 verður birt í byrjun desember n.k. þegar gögn þar að lútandi verða tiltæk).


Næsta birting: 08. desember 2023

Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is
Hagfræði og peningastefna | raungengi@sedlabanki.is