logo-for-printing

18. ágúst 2017

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 08/2017

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 07/2017 dags 18. júlí sl. þar sem engin vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands hefur átt sér stað síðan þá.

Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru lán gegn veði, er því áfram óbreyttur 5,25%.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir 12,25% fyrir tímabilið 1. - 30. september 2017.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. september 2017:
• Vextir óverðtryggðra útlána 5,85%
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65%
• Vextir af skaðabótakröfum 3,90%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 8/2017

Til baka