logo-for-printing

12. júlí 2016

Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis

Peningastefnunefnd 2016

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis sem fjallar um störf nefndarinnar á fyrri hluta ársins 2016 hefur verið birt á vef bankans.

Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Lögin kveða á um að peningastefnunefnd haldi fundi að minnsta kosti átta sinnum á ári. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið fjóra reglulega fundi, síðast 1. júní. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá janúar til júní 2016.

Sjá skýrsluna hér: Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis fyrir fyrri hluta ársins 2016.

Fyrri skýrslur um störf peningastefnunefndar eru hér.

Til baka