logo-for-printing

20. maí 2016

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2016

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Engin breyting hefur orðið á grunni dráttarvaxta frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2016 er gefin var út 19. apríl sl. þar sem að stýrivextir hafa ekkert breyst síðan þá. Dráttarvextir verða því óbreyttir 13,50% fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2016.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2016;

• Vextir óverðtryggðra útlána 7,05%
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65%
• Vextir af skaðabótakröfum 4,70%

 

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2016
Til baka