logo-for-printing

18. febrúar 2016

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 02/2016

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Engin breyting hefur orðið á grunni dráttarvaxta frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 1/2016 gefin var út 19. janúar sl. þar sem stýrivextir hafa ekkert breyst síðan þá. Dráttarvextir breytast því ekki og verða áfram 13,50% fyrir tímabilið 1. – 31. mars 2016.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. mars 2016;

• Vextir óverðtryggðra útlána 7,05%
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65%
• Vextir af skaðabótakröfum 4,70%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 02/2016


Til baka