logo-for-printing

17. júlí 2015

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2015

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Enginn breyting hefur orðið á grunni dráttarvaxta frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2015 sem gefin var út 19. júní sl. þar sem stýrivextir hafa ekkert breyst síðan þá.
Dráttarvextir breytast því ekkert og verða áfram 12,75% fyrir tímabilið 1. – 31. ágúst 2015.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. ágúst 2015;

• Vextir óverðtryggðra útlána 6,10% - (hækka úr 6,00%)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 4,07% - (hækka úr 4,00%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2015.

Til baka