logo-for-printing

16. júlí 2015

Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis

Peningastefnunefnd 2012

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis sem fjallar um störf nefndarinnar á fyrri hluta ársins 2015 hefur verið vistuð á vef bankans.

Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Lögin kveða á um að peningastefnunefnd haldi fundi að minnsta kosti átta sinnum á ári. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið fjóra reglulega fundi, síðast 10. júní. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá janúar til júní 2015.

Sjá skýrsluna hér: Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis fyrir fyrri hluta ársins 2015.

Fyrri skýrslur um störf peningastefnunefndar eru hér. 

Til baka