logo-for-printing

26. mars 2015

Ársfundur Seðlabanka Íslands 2015

Bygging Seðlabanka Íslands
Í dag verður ársfundur Seðlabanka Íslands haldinn. Þar verða reikningar bankans lagðir fram en auk þess munu Jón Helgi Egilsson, formaður bankaráðs, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Már Guðmundsson seðlabankastjóri flytja ræður. Ársskýrsla bankans fyrir árið 2014, sem inniheldur reikningana, verður birt á vef bankans eftir klukkan 16 í dag ásamt þeim ræðum sem fluttar verða á ársfundinum.

Hér má skoða ársskýrslur síðustu ára: Ársskýrsla Seðlabanka Íslands.
Til baka