logo-for-printing

13. febrúar 2015

Nýjar upplýsingar um gjaldeyrismál

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands hefur birt frekari upplýsingar um gjaldeyrismál, sem tengjast almennri framkvæmd tiltekinna flokka af beiðnum um undanþágu frá lögum nr. 87/1992, um gjaldeyrismál, en þær upplýsingar má finna hér. Þar má nú meðal annars finna almennar upplýsingar um eftirfarandi flokka af beiðnum um undanþágur:

- Undanþágur vegna fjárfestinga innlendra einstaklinga í farartækjum erlendis.
- Undanþágur fyrir afturvirkri skráningu nýfjárfestingar vegna mistaka fjármálafyrirtækis.
- Undanþágur frá fresti til endurfjárfestingar.
- Undanþágur frá fresti til greiðslu vaxta, verðbóta, arðs og samningsbundinna afborgana.
- Undanþágur vegna gjafa/styrkja góðgerðar-/styrktarfélaga umfram hámarksfjárhæð.
- Undanþágur vegna dæmds/úrskurðaðs málskostnaðar hér á landi.

Þá hefur Seðlabanki Íslands uppfært tölfræðilegar upplýsingar um afgreiðslu beiðna um undanþágu frá lögum nr. 87/1992, um gjaldeyrismál, en þær upplýsingar má finna hér.  Þar má nú meðal annars finna almennar upplýsingar um afgreiðslutíma undanþágubeiðna og afgreiðsluhlutfall innsendra erinda.

Tölfræðilegar upplýsingar um afgreiðslu undanþágubeiðna eru jafnframt birtar í ársskýrslu Seðlabanka Íslands.

Nánari upplýsingar um gjaldeyrismál má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið gjaldeyrismal@sedlabanki.is. Vinsamlegast athugið að hér er einungis átt við fyrirspurnir um gjaldeyrismál en beiðnir um undanþágu frá lögum nr. 87/1992, um gjaldeyrismál, verða að berast Seðlabanka Íslands bréflega ásamt gögnum er málið varða, sbr. 5. málsl. 1. mgr. 13. gr. o. laga nr. 87/1992, um gjaldeyrismál.

Einnig er hægt að hringja í síma 5699600, en símatími lögfræðinga í gjaldeyriseftirliti er frá 10:00 til 12:00 alla virka daga.

Ofangreindar upplýsingar eru sem sagt hér: https://www.sedlabanki.is/gjaldeyrismal/fjarmagnshoft/skilgreiningar/.

Og enn fremur hér: https://www.sedlabanki.is/gjaldeyrismal/fjarmagnshoft/undanthagur/

Til baka