logo-for-printing

16. janúar 2015

Útgáfudagar fyrir lánshæfismat ríkissjóðs

Skógarþröstur við byggingu Seðlabanka Íslands

Matsfyrirtækjunum Standard & Poors og Fitch er gert að birta dagsetningar fyrir útgáfu á lánshæfismati aðildarríkja Evrópusambandsins, samanber reglugerð númer 462/2013. Þessi reglugerð miðar að því meðal annars að auka gagnsæi í starfsemi matsfyrirtækja, bæta matsferlið og auka ábyrgð fyrirtækjanna á lánshæfismati sem hefur sýnt sig að hafa mikil áhrif á lánskjör sem ríkissjóðir aðildarríkja Evrópusambandsins njóta. Þar sem aðalgreinandi Moody‘s er ekki staðsettur í ríki Evrópusambandsins þarf fyrirtækið ekki að birta áætlun fyrir árið.

Reglugerðin gildir einnig fyrir ríki á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en hún ásamt nokkrum nýjum reglum um fjármálaeftirlit og fleira (sbr. t.d. reglugerð númer 1095/2010) hefur að vísu ekki verið formlega innleidd í EES-ríkjunum.

Birtingaráætlunin er alfarið á ábyrgð matsfyrirtækjanna sjálfra.

Matsfyrirtækin hafa birt dagsetningar 2015 fyrir Ísland sem hér segir:

Matsfyrirtæki Dagsetning 
 S&P 16. janúar 
 Fitch 30. janúar   
 S&P 17. júlí 
 Fitch 24. júlí   

 

Til baka