logo-for-printing

25. ágúst 2014

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 8/2014

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 7/2014 útgefinni 19. júlí sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,00% fyrir tímabilið 1. – 30. september 2014.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. september 2014;

• Vextir óverðtryggðra útlána 6,75% - (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 4,50% - (óbreyttir)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 8/2014

 

Til baka