logo-for-printing

07. júlí 2014

Nýr samstarfssamningur Seðlabankans og Hagstofunnar á sviði rannsókna

Ólafur Hjálmarsson hagstofustjóri og Már Guðmundsson seðlabankastjóri

Ólafur Hjálmarsson hagstofustjóri og Már Guðmundsson seðlabankastjóri hafa undirritað samstarfssamning milli stofnananna á sviði rannsókna. Markmið samningsins er að auka samstarf Hagstofu Íslands og Seðlabanka Íslands á sviði rannsókna með því að veita sérfræðingum Seðlabanka Íslands tækifæri til að sinna rannsóknarverkefnum í samstarfi við Hagstofu Íslands. Jafnframt gerir samstarfssamningurinn Hagstofunni kleift að auka gæði sinna gagna í samstarfi við fræðimenn Seðlabankans.

Til baka