logo-for-printing

21. febrúar 2014

Orðsending til starfsmanna Seðlabanka Íslands frá Má Guðmundssyni

Vegna fyrirspurna fjölmiðla í tilefni af tilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytis um að embætti seðlabankastjóra verði auglýst til umsóknar, er hér birt orðsending Más Guðmundssonar til starfsfólks bankans.

Kæra samstarfsfólk,

Ég var skipaður í stöðu seðlabankastjóra til fimm ára frá og með 20. ágúst 2009. Í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, bar fjármála- og efnahagsráðherra að tilkynna mér fyrir lok dags á miðvikudag hvort hann hygðist auglýsa starfið laust til umsóknar, ella hefði skipan mín framlengst af sjálfu sér um fimm ár í viðbót. Á sama tíma og þessi orðsending birtist ykkur mun fjármála- og efnahagsráðuneytið senda frá sér tilkynningu þess efnis að mér hafi verið tilkynnt um að staða seðlabankastjóra verði auglýst laus til umsóknar.

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur tjáð mér að þessi ákvörðun feli ekki í sér vantraust til mín og mun það koma fram opinberlega. Ástæða ákvörðunarinnar er sögð vera sú að ríkisstjórnin hefur áhuga á að skoða breytingar á skipulagi yfirstjórnar bankans. Af þeim sökum vilja stjórnvöld hafa meira svigrúm en þau telja að yrði til staðar ef fimm ára ráðning mín yrði ákveðin nú.

Á næstu vikum mun skýrast betur hvernig staðið verður að framhaldi þessa máls. Mér er tjáð að ekki standi til að ganga gegn sjálfstæði bankans né faglegri yfirstjórn. Ég hef áður lýst því yfir að ég er tilbúinn að hefja nýtt tímabil sem seðlabankastjóri og sú yfirlýsing stendur. Verði hins vegar gerðar lagabreytingar sem fela í sér að eðli starfsins breytist eða breytingar verða á umsóknarferlinu sjálfu verð ég að leggja nýtt mat á málið. Það verður því að bíða og sjá og ekki má gefa sér fyrirfram hvort slíkar breytingar eru til hins verra eða betra enda eru góð orð um að sérfræðiþekking Seðlabankans verði nýtt í því ferli sem framundan er.

Már Guðmundsson

Til baka