logo-for-printing

23. desember 2013

Seðlabanki Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordal

SEÐLABANKI ÍSLANDS

auglýsir eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordal.

Auglýst er eftir umsóknum um styrk tengdan nafni Jóhannesar Nordal sem Seðlabanki Íslands veitir. Ákveðið var að veita styrkinn í tilefni af 50 ára afmæli Seðlabanka Íslands á árinu 2011. Tilgangur með styrknum er að styðja viðleitni einstaklinga sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.

Umsóknir skulu sendar skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands fyrir 1. febrúar 2014. Fjárhæð styrksins nemur 2.000.000 kr. og verður fjárhæðinni úthlutað í apríl eða maí 2014.

Reglur um úthlutun styrksins og eyðublöð fyrir umsóknir má finna hér: Menningarstyrkur tengdur nafni Jóhannesar Nordal   

Nánari upplýsingar veitir Jón Sigurgeirsson framkvæmdastjóri á skrifstofu seðlabankastjóra. Seðlabanki Íslands • Kalkofnsvegi 1 • 150 Reykjavík • Sími: 569 9600

Til baka