logo-for-printing

23. september 2013

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 9/2013

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 8/2013 útgefinni 21. ágúst sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,00% fyrir tímabilið 1. – 31. október 2013.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. október 2013;

• Vextir óverðtryggðra útlána 6,75% - (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 4,50% - (óbreyttir)

Sjá nánar: tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 9/2013

Til baka