logo-for-printing

02. september 2013

Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á öðrum ársfjórðungi 2013

Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2013 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 10,7 ma.kr. á ársfjórðungnum samanborið við 3,9 ma.kr. hagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan. Halli á vöruskiptum við útlönd var 2,2 ma.kr. en afgangur af þjónustuviðskiptum var 20,1 ma.kr. Jöfnuður þáttatekna var neikvæður um 28,6 ma.kr. Viðskiptajöfnuður án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var hagstæður um 0,5 ma.kr. samanborið við hagstæðan jöfnuð er nam 15,4 ma.kr. fjórðunginn á undan.

Sjá hér fréttina í heild ásamt töflum um greiðslujöfnuð og erlenda stöðu.

Frétt um greiðslujöfnuð og erlenda stöðu á öðrum ársfjórðungi 2013

Nr. 27/2013
2. september 2013

 

Undirliggjandi erlend staða
Athygli er vakin á því að í dag verður einnig birt á vef Seðlabanka Íslands greining á undirliggjandi erlendri stöðu þjóðarbúsins. Sjá þá frétt hér: Undirliggjandi staða þjóðarbúsins.

Nánari upplýsingar veita Ríkarður Bergstað Ríkarðsson og Pétur Örn Sigurðsson á upplýsingasviði Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Til baka