logo-for-printing

06. júní 2013

Nýjar upplýsingar um lífeyrissjóði

Hrein eign lífeyrissjóðanna nam 2.463 ma.kr. í lok apríl 2013 og hafði lækkað um 11 ma. kr. eða 0,4% frá lokum mars. Þar af var eign samtryggingarsjóðs 2.220 ma.kr. en eign séreignadeilda 243 ma.kr. Innlend verðbréfaeign jókst um rúma 12 ma.kr. og var tæpir 1.787 ma.kr. í lok mánaðar. Mesta aukningin var í innlendum hlutabréfum en þau jukust um 6,5 ma.kr. og í ríkisskuldabréfum sem jukust um rúma 3 ma.kr. Erlend verðbréfeign lækkaði hins vegar um 22 ma.kr. eða tæp 4% og var 537 ma.kr. í lok mánaðarins. Stafar það fyrst og fremst af lækkun erlendra hlutabréfa og hlutabréfasjóða sem alls lækkuðu um rúma 18 ma. kr.

Sjá nánar: Lífeyrissjóðir

 

Til baka