logo-for-printing

28. maí 2013

Málstofa: Íslenska hagsveiflan

Mynd frá málstofunni ,,Íslenska hagsveiflan''

Í dag, miðvikudaginn 29. maí var haldin málstofa í fundarsal Seðlabanka Íslands, Sölvhóli.

Efni málstofunnar var: Íslenska hagsveiflan í alþjóðlegu samhengi.

Frummælendur voru Bjarni G. Einarsson, Guðjón Emilsson og Rósa Sveinsdóttir.

Á málstofunni var rannsóknarritgerðin On our own? The Icelandic business cycle in an international context kynnt. Í ritgerðinni eru eiginleikar íslensku hagsveiflunnar kannaðir og tengsl hennar við hagsveiflur annarra þróaðra ríkja metin. Byrjað er á að tímasetja íslensku hagsveifluna og meðal lengd og sveifluvídd þenslu- og samdráttarskeiða. Þar næst er hagsveifluþáttur fjölda hagstærða fundinn og helstu einkenni íslensku hagsveiflunnar skjalfest. Að lokum eru undirliggjandi kerfisskellir metnir og tengsl þessara skella á Íslandi við sambærilega skelli í öðrum þróuðum ríkjum könnuð. Niðurstöðurnar benda til þess að þrátt fyrir að einkenni íslensku hagsveiflunnar séu svipuð einkennum hagsveiflna annarra þróaðra ríkja hvað margt varðar eru engu að síður mikilvægar undantekningar þar á. Auk þess benda niðurstöðurnar til þess að íslenska hagsveiflan sé að miklu leyti ótengd hagsveiflum annarra þróaðra ríkja. Þessar niðurstöður eru mikilvægar fyrir innlenda hagstjórn og veita viðmið við líkanagerð fyrir íslenska hagkerfið. Niðurstöðurnar eru einnig mikilvægt innlegg í mat á hagkvæmasta gjaldmiðils- og gengisfyrirkomulagi fyrir Ísland.

 

Til baka

Myndir með frétt

Mynd frá málstofunni ,,Íslenska hagsveiflan''
Mynd frá málstofunni ,,Íslenska hagsveiflan''
Mynd frá málstofunni ,,Íslenska hagsveiflan''
Mynd frá málstofunni ,,Íslenska hagsveiflan''
Mynd frá málstofunni ,,Íslenska hagsveiflan''