logo-for-printing

20. febrúar 2013

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum (nr. 2/2013).

Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 1/2013 dagsettri 17. janúar sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 13,00% fyrir tímabilið 1. - 31. mars 2013.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir tímabilið 1. – 31. mars 2013;

  • Vextir óverðtryggðra útlána 6,75% - (óbreyttir)
  • Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (lækka úr 3,75%)
  • Vextir af skaðabótakröfum 4,50% - (óbreyttir)

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti o.fl. 2/2013 (pdf)

Til baka