logo-for-printing

18. desember 2012

Niðurstaða gjaldeyrisútboða

Hinn 20. nóvember 2012 bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Jafnframt kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðin tvö um kaup á evrum fóru fram á milli kl. 9:45 og 10:45 í dag. Krónukaupaútboðið fór fram á milli kl. 13:00 og 14:00. Útboðin voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Þetta má einnig sjá í skilmálum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta með síðari breytingum frá 18. nóvember 2011.

Niðurstaða útboða um kaup á evrum
Alls bárust 86 tilboð að fjárhæð 43,9 milljónir evra og var tilboðum að fjárhæð 30,9 milljónum evra tekið. Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 233 kr. fyrir hverja evru.

Lykiltölur Alls   Ríkisverðbréf    Fjárfestingarleið 
Fjöldi tilboða  86  15  71
Heildarfjárhæð, EUR  49,9 m.   4,8 m.   39,1 m.
Tekin tilboð, EUR  30, 9 m.   4,5 m.   26,4

 

 

 

 Lykiltölur

Alls 

Ríkisverðbréf   Fjárfestingarleið
 Fjöldi tilboða

 86

 15

71 

 Heildarfjárhæð, EUR

 43,9 m.

4,8 m. 

39,1 m. 

 Tekin tilboð, EUR

 30,9 m.

4,5 m. 

26,4 m. 

 

Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í ríkisverðbréfaleiðinni fá fjárfestar afhent verðtryggð ríkisverðbréf RIKS 33 0321. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir 986 milljónir króna að nafnvirði. Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í fjárfestingarleiðinni fá fjárfestar íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Samtals voru keyptar evrur að andvirði 7,2 milljarða króna í útboðunum tveimur.

Niðurstaða útboðs um kaup á krónum fyrir evrur
Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 233 kr. fyrir hverja evru. Alls bárust 40 tilboð að fjárhæð 19,9 ma.kr. og var tilboðum að fjárhæð 6,8 ma.kr. tekið.

 

Lykiltölur

Alls

Fjöldi tilboða

40

Heildarfjárhæð, ma.kr.

19,9

Tekin tilboð, ma.kr.

 6,8


Samandregnar niðurstöður útboða í ríkisverðbréfa- og fjárfestingarleið
Í neðangreindri töflu má sjá samandregnar niðurstöður sextán gjaldeyrisútboða á þessu ári.

  Lykiltölur

Alls Ríkisverðbréf Fjárfestingarleið
Fjöldi tilboða

 548

 204

 344

Heildarfjárhæð, EUR

497,1 m.

279,9 m.

 217,2 m.

Tekin tilboð, EUR

 315,4 m.

124,7 m.

190,7 m.

Kaupendur ríkisverðbréfanna hafa að 81% verið lífeyrissjóðir og aðrir aðilar hafa keypt 19%. Undirliggjandi fjárfestingar fjárfestingarleiðarinnar skiptast með þeim hætti að hlutabréf hafa verið 48% kaupanna, skuldabréf 38%, fasteignir 13% og kaup í verðbréfasjóðum 1%. Samanlagðar fjárfestingar á grundvelli fjárfestingarleiðarinnar nema 381 milljónum evra sem samsvarar u.þ.b. 76 milljörðum ISK. Fjárfestingarnar nema 4,7% af vergri landsframleiðslu ársins 2011.

Næstu gjaldeyrisútboð verða haldin 5. febrúar, 19. mars og 30. apríl 2013.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600. 

Nr. 45/2012
18. desember 2012

Til baka