logo-for-printing

13. desember 2012

Fjármálakreppa með og án evru

Í dag verður haldið málþing sem ber heitið „Ítalía og Ísland: fjármálakreppa með og án evru“. Málþingið verður haldið í Hátíðarsal Háskóla Íslands kl. 15:00-17:00. Málþingið er skipulagt af sendiráði Ítalíu, Háskóla Íslands og Seðlabanka Íslands, en markmið þess er að varpa skýrara ljósi á hvernig Ítalía sem aðili að ESB og evrusvæðinu, og Ísland, sem aðili að EES-samningnum og með sinn eigin gjaldmiðil, tókust á við alþjóðlegu efnahags- og fjármálakreppuna, og að setja reynslu þeirra í alþjóðlegt og evrópskt samhengi.

Málshefjendur eru: Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Giannandrea Falchi framkvæmdastjóri skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Ítalíu, Franek Rozwadowski fastafulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, Gylfi Zoëga prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands og nefndarmaður í peningastefnunefnd, Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands og nefndarmaður í peningastefnunefnd, og Már Guðmundsson seðlabankastjóri.

Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands og Antonio Bandini sendiherra Ítala verða með ávarp í upphafi málþingsins.

Í lok málstofunnar verða léttar veitingar í boði sendiráðs Ítalíu.

Til baka