logo-for-printing

07. desember 2012

Starfsemi Þjóðhátíðarsjóðs lokið

 

6. desember 2012

 

F R É T T A T I L K Y N N I N G

í tilefni af styrkveitingu Þjóðhátíðarsjóðs
til Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
sem jafnframt er síðasti styrkur sjóðsins.

 

Kveðið var á um stofnun Þjóðhátíðarsjóðs í tilefni af 1100 ára búsetu á Íslandi, og gefin út skipulagsskrá þremur árum síðar nr. 361/1977. Frá þeim tíma hefur sjóðurinn úthlutað styrkjum árlega allt til ársins 2011, eða í 34 ár.

Árið 2006 var skipulagsskrá sjóðsins breytt þannig að leggja skyldi Þjóðhátíðarsjóð niður og ráðstafa öllu fé sjóðsins til styrkveitinga fram til ársins 2011 í samræmi við tilgang hans, sbr. þingsályktun 5/133. Í ályktuninni var enn fremur kveðið á um að verði eitthvað eftir af fjármunum í sjóðnum eftir að árlegum úthlutunum styrkja sjóðsins lýkur skuli stjórn sjóðsins án þess að auglýsa eftir umsóknum ráðstafa slíku fé í samræmi við tilgang sjóðsins.

Í samræmi við nefnda skipulagsbreytingu hefur stjórn Þjóðhátíðarsjóðs því í dag ákveðið að veita Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum styrk að fjárhæð kr. 892.790, sem jafnframt er síðasti styrkur sjóðsins, til viðgerðar á Flateyjarbók.

Hlutverki Þjóðhátíðarsjóðs er þar með lokið.

Nánari upplýsingar um styrkveitinguna eru veittar hjá ritara stjórnar Þjóðhátíðarsjóðs í síma 6934161.

Til baka