logo-for-printing

21. nóvember 2012

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2012

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hækkaði um 0,25 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands hinn 14. nóvember sl. Dráttarvextir hækka því í kjölfarið að sama skapi um 0,25 prósentur og verða 13,00% frá og með 1. desember 2012.

Vextir af peningakröfum fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2012 eru óbreyttir og verða sem hér segir:

• Vextir óverðtryggðra útlána 6,40%
• Vextir verðtryggðra útlána 3,75%
• Vextir af skaðabótakröfum 4,27%

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti o.fl. 11/2012 (pdf)

Til baka