logo-for-printing

24. september 2012

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 9/2012

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekki breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands sem birt var seinni part ágúst sl. Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 12,75% fyrir tímabilið 1. - 31. október 2012.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir hafa heldur ekkert breyst og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. október 2012;
  
   • Vextir óverðtryggðra lána 6,40%
   • Vextir verðtryggðra lána 3,75%
   • Vextir af skaðabótakröfum 4,27%

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti o.fl. 9/2012 (pdf)

Til baka