logo-for-printing

29. ágúst 2012

Niðurstaða gjaldeyrisútboða

Hinn 26. júlí 2012 bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Jafnframt kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðin tvö um kaup á evrum fóru fram á milli kl. 9:45 og 10:45 í dag. Krónukaupaútboðið fór fram á milli kl. 13:00 og 14:00. Útboðin voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Þetta má einnig sjá í skilmálum Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta með síðari breytingum frá 18. nóvember 2011.

Niðurstaða útboða um kaup á evrum

Alls bárust 76 tilboð að fjárhæð 31,8 milljónir evra og var tilboðum að fjárhæð 18,6 milljónum evra tekið. Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 235 kr. fyrir hverja evru.

Lykiltölur  Alls  Ríkisverðbréf  Fjárfestingarleið 
Fjöldi tilboða  76  18  58 
Heildarupphæð EUR  31,8m  12,5m  19,3m 
Tekin tilboð EUR  18,6m  3,7m  14,9 

Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í ríkisverðbréfaleiðinni fá fjárfestar afhent verðtryggð ríkisverðbréf RIKS 33 0321. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir 0,8 milljarða króna að nafnvirði. Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í fjárfestingarleiðinni fá fjárfestar íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Samtals voru keyptar evrur að andvirði 4,4 milljarða króna í útboðunum tveimur.

Niðurstaða útboðs um kaup á krónum fyrir evrur

 

Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 236 kr. fyrir hverja evru. Alls bárust 26 tilboð að fjárhæð 7,3 ma.kr. og var tilboðum að fjárhæð 3,8 ma.kr. tekið.

Lykiltölur  Alls 
Fjöldi tilboða  26 
Heildarupphæð ma.kr.  7,3 
Tekin tilboð ma.kr.  3,8 


Næstu gjaldeyrisútboð verða haldin 3. október, 7. nóvember og 19. desember n.k.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.


Nr. 32/2012
29. ágúst 2012
Til baka