logo-for-printing

28. mars 2012

Niðurstaða útboða um kaup á evrum og íslenskum krónum

Hinn 14. mars 2012 bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa evrur í skiptum fyrir íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi eða gegn greiðslu í ríkisverðbréfum í flokknum RIKS 33 0321. Jafnframt kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðin tvö um kaup á evrum fóru fram á milli kl. 9:45 og 10:45 í dag. Krónukaupaútboðið fór fram á milli kl. 13:00 og 14:00. Útboðin voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011. Sjá einnig skilmála Seðlabanka Íslands um gjaldeyrisviðskipti samkvæmt fjárfestingarleið að losun gjaldeyrishafta með síðari breytingum frá 18. nóvember 2011.

Seðlabankinn bauðst til að kaupa allt að 100 milljónir evra samanlagt í útboðunum tveimur til fjárfestinga í atvinnulífinu og gegn greiðslu í ríkisverðbréfum. Í útboðinu um kaup á krónum fyrir evrur bauðst Seðlabankinn til að kaupa 25 ma.kr. Seðlabankinn áskildi sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæðir.

Niðurstaða útboða um kaup á evrum

Alls bárust 79 tilboð að fjárhæð 92,9 milljónir evra og var tilboðum að fjárhæð 22,5 milljónum evra tekið. Útboðsverðið var ákveðið með þeim hætti að öll samþykkt tilboð voru tekin á sama verði (e. single price), sem var ákvarðað 239 kr. fyrir hverja evru.

Lykiltölur

Alls

RIKS 33 0321

Fjárfestingarleið

Fjöldi tilboða

79

56

23

Heildarupphæð EUR

92,9 m

70,9 m

22,0 m

Tekin tilboð EUR

22,5 m

1,8 m

20,7 m

Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í ríkisverðbréfaleiðinni fá fjárfestar afhent verðtryggð ríkisverðbréf RIKS 33 0321. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir 416,7 milljónir króna að nafnvirði.

Sem greiðslu fyrir gjaldeyrinn í fjárfestingarleiðinni fá fjárfestar íslenskar krónur til fjárfestingar til langs tíma í íslensku atvinnulífi. Samtals voru keyptar evrur að andvirði 4,9 milljarðar króna í útboðinu.

Niðurstaða útboðs um kaup á krónum fyrir evrur

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð miðast við þau gengi sem tilboðin voru lögð inn á. Alls bárust tilboð að fjárhæð 26,3 ma.kr. Tilboðum var tekið fyrir 4,9 ma.kr. og var lágmarksverð samþykktra tilboða 235 kr. fyrir evru.

Lykiltölur

Alls

Lágmarksverð

Fjöldi tilboða

40

Heildarupphæð ma.kr.

26,3 m

Tekin tilboð ma.kr.

4,9 m

235 kr

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.

Til baka