logo-for-printing

21. febrúar 2012

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 2/2012

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 1/2012 dags 18. janúar sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 11,75% fyrir tímabilið 1. - 31. mars 2012.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir tímabilið 1. – 31. mars 2012;

• Vextir óverðtryggðra útlána 5,40% - (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,75% - (lækka úr 3,90%)
• Vextir af skaðabótakröfum 3,60% - (óbreyttir)

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti o.fl. 2/2012

Til baka