logo-for-printing

08. febrúar 2012

Yfirlýsing peningastefnunefndar 8. febrúar 2012

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum.

Samkvæmt uppfærðri spá Seðlabankans, sem birtist í Peningamálum í dag, heldur efnahagsbatinn áfram, þrátt fyrir að það dragi úr hagvexti í heiminum og óvissa sé mikil. Horfur um efnahagsumsvif eru í megindráttum svipaðar og í nóvemberspá Seðlabankans. Verðbólguhorfur til skamms tíma eru einnig í takt við það sem gert hafði verið ráð fyrir, þótt nú sé spáð heldur hægari hjöðnun verðbólgu á árinu. Haldist gengi krónunnar svipað og það er nú, er því spáð að verðbólga verði fyrir ofan verðbólgumarkmið bankans heldur lengur en spáð var í nóvember.

Eftir því sem efnahagsbatanum vindur fram og dregur úr slaka í þjóðarbúskapnum verður nauðsynlegt að draga úr slaka peningastefnunnar. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar. Batni verðbólguhorfur ekki er líklegt að hækka þurfi nafnvexti á næstunni til þess að taumhald peningastefnunnar, sem er enn tiltölulega laust, verði hæfilegt.

Nr. 4/2012 
8. febrúar 2012

Vextirnir verða sem hér segir:

Daglánavextir  5,75%    
Vextir af lánum gegn veði til sjö daga   4,75%  
Hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum   4,5%   
Innlánsvextir   3,75%

 

Frétt nr. 4/2012: Yfirlýsing peningastefnunefndar 8. febrúar 2012 (pdf-skjal)

Skjal: Vextir við Seðlabanka Íslands 8.2.2012 (pdf-skjal)

Til baka