logo-for-printing

20. desember 2011

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2011

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2011 dags 21. nóvember sl. Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 11,75% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2012. Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 31. janúar 2012.

Vextir óverðtryggðra útlána 5,40% - (voru 5,25%)
Vextir verðtryggðra útlána 3,90% - (óbreyttir)
Vextir af skaðabótakröfum 3,60% - (voru 3,50%)

Til baka