logo-for-printing

24. nóvember 2011

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2011

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hækkaði um 0,25 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans Íslands hinn 2. nóvember sl. sbr. tilkynningu bankastjórnar þar um sama dag. Dráttarvextir hækka því að sama skapi um 0,25 prósentur frá og með 1. desember nk. og verða 11,75% fyrir tímabilið 1. - 31. desember 2011.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2011;

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 5,25% - (lækka úr 5,40%)
• Vextir verðtryggðra útlána verða 3,90% - (eru óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum verða 3,50% - (lækka úr 3,60%)

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti o.fl. 11/2011

 

Til baka