logo-for-printing

23. nóvember 2011

Matsfyrirtækið S&P breytti í dag horfum á lánshæfismati ríkissjóðs

Matsfyrirtækið Standard & Poor‘s staðfesti í dag óbreytta lánshæfiseinkunn BBB-/A-3 fyrir langtíma- og skammtímaskuldbindingar Ríkissjóðs Íslands í erlendri og innlendri mynt. Horfum var breytt úr neikvæðum í stöðugar.

Helstu atriði úr fréttatilkynningu Standard og Poor‘s eru í lauslegri þýðingu:

• Íslenskt efnahagslíf er á batavegi eftir fall þriggja stærstu viðskiptabankanna. Hagvöxtur hefur tekið við sér að nýju eftir tveggja ára djúpa niðursveiflu.

• Að okkar mati hefur náðst mikilsverður árangur í endurskipulagningu efnahagsreikninga einkageirans og við búumst við að því ferli verði að mestu lokið um mitt ár 2012.

• Við höfum því breytt horfum um lánshæfismat Íslands í stöðugar úr neikvæðum. Þar eru vegnar saman styrkari grunnstoðir efnahagslífsins á móti áhættu tengdri afléttingu gjaldeyrishafta á næstu árum.

• Við staðfestum einnig BBB-/A-3 lánshæfiseinkunnir Ríkissjóðs Íslands.

Sjá nánar:

Standard and Poor's: Research Update Outlook On Iceland Revised To Stable From Negative On Return To Growth BBB-/ A-3 RatingsAffirmed.pdf
 
 

Til baka