logo-for-printing

20. nóvember 2011

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2011

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur haldist óbreyttur frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2011 dags 21. nóvember sl.
Dráttarvextir haldast því óbreyttir og verða áfram 11,75% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2012.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. janúar 2012;

• Vextir óverðtryggðra útlána 5,40% - (voru 5,25%)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,90% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 3,60% - (voru 3,50%)

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti o. fl. 12/2011

 

Til baka