logo-for-printing

03. júní 2011

Fimmta endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og AGS samþykkt

Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkti í dag fimmtu endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS. Endurskoðanirnar eru alls sex þar sem tvær síðustu endurskoðanirnar verða sameinaðar í eina.

Þessi afgreiðsla framkvæmdastjórnarinnar felur í sér að sjötti áfangi lánafyrirgreiðslu sjóðsins er til reiðu, eða 140 milljónir SDR. Það er jafnvirði um 225 milljóna Bandaríkjadala eða 25,7 milljarða íslenskra króna.

Áður hefur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn veitt lán sem nemur 980 milljónum SDR af 1,4 milljörðum SDR sem hann lánar í tengslum við áætlunina. Lánsfjárhæðin 980 milljónir SDR jafngildir tæplega 1,6 milljörðum Bandaríkjadala eða rúmlega 179,7 milljörðum króna.

Sjá einnig frétt frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu

 

 
Til baka