logo-for-printing

20. apríl 2011

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 4/2011

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta breyttist ekki við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans hinn 20. apríl sl. Dráttarvextir breytast því ekki og verða því áfram 11,25% fyrir tímabilið 1. - 31. maí 2011.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2011 og verða því áfram sem hér segir; 

• Vextir óverðtryggðra lána 5,25%
• Vextir verðtryggðra lána 4,7%
• Vextir af skaðabótakröfum 3,50%

Sjá nánar: Tilkynning um dráttarvexti o.fl. 4/2011 (pdf)

Til baka