logo-for-printing

05. júní 2009

Innstæðubréf

Innstæðubréf Seðlabankans, flokkur SI 09 0624, er á gjalddaga 24. júní. nk. Útistandi í flokknum er nú um 67 ma.kr. Flokkurinn var upphaflega gefinn út í því skyni að auka framboð skammtímabréfa á markaði. Frá því að innstæðubréfið, sem nú fellur á gjalddaga, var gefið út hefur ríkissjóður aukið mikið útgáfu ríkisbréfa og ríkisvíxla. Því er minni ástæða fyrir Seðlabankann að gefa út skammtímaverðbréf. Seðlabankinn mun ekki endurnýja innstæðubréfaflokk 24. júní nk.


Nánari upplýsingar veitir Gerður Ísberg staðgengill framkvæmdastjóra alþjóða- og markaðssviðs Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Til baka