logo-for-printing

26. maí 2009

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 5/2009

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. júní 2009 breytast vextir óverðtryggðra lána úr 18,0% í 10,5% og skaðabótavextir verða 7,0% en voru áður 12,0%. Vextir eru því eftirfarandi: Óverðtryggð lán 10,5%, skaðabótakröfur 7,0% og verðtryggð lán 5,9%.

Grunnur dráttarvaxta hefur lækkað um 2,5% frá síðustu dráttarvaxtaákvörðun úr 15,5% í 13,0%. Dráttarvextir lækka því frá 1. júní 2009 um 2,5% og verða 20,0% fyrir tímabilið 1. júní - 30. júní 2009.

Sjá tilkynninguna í heild (pdf-skjal)
Til baka