logo-for-printing

16. desember 2008

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 6/2008

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. janúar 2009 verða vextir af peningakröfum óbreyttir frá síðustu vaxtaákvörðun sem tók gildi 1. desember sl. Vextir eru því eftirfarandi: Óverðtryggð lán 21,0%, skaðabótakröfur 14% og verðtryggð lán 5,9%.

Samkvæmt 6. gr. í kafla nr. III um dráttarvexti í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, geta dráttarvextir breyst 1. janúar og 1. júlí ár hvert og gilda þeir vextir næstu sex mánuði þar á eftir. Að þessu sinni hefur vanefndaálag verið lækkað úr 11,0% í 7,0% og lækka því dráttarvextir um 1,5% og verða því 25,0% til og með 30. júní 2009.

Tilkynningin í heild (pdf-skjal)

Til baka