logo-for-printing

30. september 2008

Fitch lækkar lánshæfismat ríkissjóðs Íslands í A-. Horfur eru neikvæðar.

Matsfyrirtækið Fitch Ratings greindi frá því í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri og innlendri mynt í A- og AA úr A+ og AA+.

Lánshæfiseinkunnin fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt er lækkuð í F2 úr F1 og landseinkunnin (e. country ceiling) lækkuð í A úr AA-. Auk þess hefur Fitch sett lánshæfiseinkunnirnar á neikvæðar horfur.

Fréttatilkynningu Fitch Ratings má nálgast hér: Fitch0908.pdf



Til baka