logo-for-printing

18. júní 2008

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 2/2008

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. júlí 2008 verða vextir af peningakröfum óbreyttir frá síðustu vaxtaákvörðun sem tók gildi 1. júní sl.

Vextir eru því eftirfarandi: Óverðtryggð lán 18,5%, skaðabótakröfur 12,30% og verðtryggð lán 6,3%.

Samkvæmt 6. gr. í kafla nr. III um dráttarvexti í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, geta dráttarvextir breyst 1. janúar og 1. júlí ár hvert og gilda þeir vextir næstu sex mánuði þar á eftir. Að þessu sinni hækka dráttarvextir um 1,5% og verða því 26,5% til og með 31. desember 2008. Grunnur dráttarvaxta er 15,5% og vanefndaálag í 11,0%.

16. júní 2008

Sjá tilkynninguna í heild (pdf-skjal)

 

 

Til baka