logo-for-printing

01. apríl 2008

Standard & Poor's hefur til athugunar lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs

Matsfyrirtækið Standard & Poor’s hefur til athugunar lánshæfiseinkunnir fyrir langtímaskuldbindingar ríkissjóðs með neikvæðum vísbendingum (e. credit watch with negative implications).

Fréttin hefur þegar birst á fréttaveitunni Bloomberg. Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs hjá Standard & Poor's eru A+/A-1 fyrir skuldbindingar í erlendri mynt og AA/A-1+ fyrir skuldbindingar í íslenskum krónum.

Fréttatilkynningu Standard & Poor's má nálgast hér (pdf-skjal) 

 

 

Til baka