logo-for-printing

25. október 2007

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 9/2007

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. nóvember 2007 eru vextir óbreyttir frá síðustu vaxtaákvörðun sem tók gildi 1. október sl., að undanskildum vöxtum af verðtryggðum lánum. Vextir eru því eftirfarandi: Óverðtryggð lán 16,0%, skaðabótakröfur 10,7% og verðtryggð lán 5,75%.

Samkvæmt 6. gr. í kafla nr. III um dráttarvexti í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, geta dráttarvextir breyst 1. janúar og 1. júlí ár hvert og gilda þeir vextir næstu sex mánuði þar á eftir. Dráttarvextir haldast því óbreyttir, 25%, til og með 31. desember 2007 sbr. vaxtatilkynningu nr. 5/2007, dags. 14. júní 2007.

Sjá tilkynninguna í heild (pdf-skjal)

Til baka