logo-for-printing

26. janúar 2007

Auglýst eftir hagfræðingi til starfa í Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands auglýsir laust til umsóknar starf hagfræðings á hagfræðisviði. Hagfræðisvið annast rannsóknir og greiningu á þróun efnahags- og peningamála, gerir þjóðhags- og verðbólguspár og tekur þátt í mótun stefnunnar í peningamálum. Hagfræðisvið hefur m.a. umsjón með útgáfu ársfjórðungsritsins Peningamála og ensku útgáfu þess Monetary Bulletin.

Verkefni hagfræðingsins verða m.a.:

·  Almennar rannsóknir, einkum á sviði peninga- og þjóðhagfræði.

·   Þátttaka í gerð verðbólgu- og þjóðhagsspáa bankans og framþróun líkana til spágerðar.

·  Tilfallandi verkefni og ráðgjöf á ábyrgðarsviðum Seðlabankans.

 

Áskilið er a.m.k. meistarapróf í hagfræði og lögð er áhersla á að umsækjandi hafi gott vald á aðferðum til hagrannsókna og notkun hugbúnaðar til tölfræðigreiningar og hagmælinga. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði íslensku og ensku, og hæfileika til að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt. Umsækjandi þarf að hafa góða samskiptahæfileika og vera reiðubúinn til hópvinnu af ýmsu tagi.

Upplýsingar um starfið veitir Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur, í síma 569­9600. Umsóknum skal skilað fyrir 22. febrúar 2007 til rekstrarstjóra Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík. 

 

 

 

 

Til baka