logo-for-printing

25. janúar 2007

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 1/2007

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Frá og með 1. febrúar 2007 eru vextir óverðtryggðra lána og vextir af skaðabótakröfum óbreyttir frá síðustu vaxtaákvörðun sem tók gildi 1. janúar sl., en vextir verðtryggðra lána hækka um 0,1 prósentustig. Vextir eru því eftirfarandi: Óverðtryggð lán 16,0%, skaðabótakröfur 10,7% og verðtryggð lán 4,95%.

Samkvæmt 6. gr. í kafla nr. III um dráttarvexti í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, skulu dráttarvextir breytast 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Dráttarvextir haldast því óbreyttir 25,0% til og með 30. júní 2007 sbr. vaxtatilkynningu nr. 12/2006 dags 15. desember 2006.

Sjá síðu um vexti
Til baka