logo-for-printing

05. desember 2006

Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á þriðja ársfjórðungi 2006

Í dag eru birt á heimasíðu bankans yfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á þriðja fjórðungi ársins og stöðu þjóðarbúsins í lok september 2006.

Viðskiptajöfnuður var óhagstæður um 80,8 ma.kr. á þriðja fjórðungi ársins. Á fyrstu níu mánuðum ársins var viðskiptahallinn 205,3 ma.kr. samanborið við 103,1 ma.kr. halla árið áður. Halli er á öllum liðum viðskiptajafnaðar, þ.e. vöruskipta-, þjónustu-, þáttatekna og rekstrarframlaga. Jöfnuður þáttatekna versnaði sýnu mest á þriðja fjórðungi ársins sem rekja má til hækkunar erlendra skulda og vaxtahækkana á lánamörkuðum erlendis. Einnig veldur mikill hagnaður innlendra fyrirtækja í eigu erlendra aðila þar miklu um því hann er færður til gjalda í jöfnuði þáttatekna og endurfjárfestur á sama tíma í fyrirtækjunum, þ.e. sem bein fjárfesting erlendra aðila á Íslandi.

Hreint fjárinnstreymi nam 199,5 ma.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins. Fjárinnstreymið skýrist að stærstum hluta af erlendum lántökum banka og fyrirtækja. Erlendar fjárfestingar námu um 703 ma.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins 2006.

Sjá hér pdf-skjal með fréttinni í heild (15 KB)

 

Nr. 45/2006
5. desember 2006

Til baka