logo-for-printing

01. desember 2006

Viðmiðunargengi erlendra gjaldmiðla

Daglega er skráð opinbert viðmiðunargengi tíu gjaldmiðla, sbr. 19. gr. laga nr. 36 frá 22. maí 2001 um Seðlabanka Íslands. Skráð er kaup-, sölu- og miðgengi þessarra gjaldmiðla. Í dag hefst skráning miðgengis tuttugu og fimm gjaldmiðla til viðbótar og verður það birt á heimasíðu bankans daglega hér eftir. Athygli er vakin á því að varðandi þá gjaldmiðla sem nú bætast við er ekki um að ræða opinbert viðmiðunargengi í skilningi laganna sem vitnað var til, aðeins skráð miðgengi.

Opinbert viðmiðunargengi er skráð fyrir eftirtalda gjaldmiðla:

Bandaríkjadalur  USD   
Sterlingspund   GBP   
Kanadadalur   CAD   
Dönsk króna   DKK   
Norsk króna   NOK
Sænsk króna   SEK  
Svissneskur franki   CHF   
Japanskt jen   JPY  
Sérstök dráttarréttindi   XDR
Evra   EUR


Miðgengi er skráð fyrir eftirtalda gjaldmiðla frá og með 1. desember 2006:

Kínverskt júan  CNY   
Rússnesk rúbla   RUB   
Pólskt slot  PLN
Eistnesk króna   EEK   
Lettneskt lat   LVL
Litháenskt litas   LTL  
Nígersk næra   NGN   
Tævanskur dalur   TWD 
Suðurkóreskt vonn   KRW
Súrinamskur dalur  SRD
Ástralíudalur   AUD
Ný-Sjálenskur dalur   NZD
Hong Kong dalur   HKD
Ungversk forinta   HUF
Ísraelskur sikill   ILS
Suður-Afrískt rand   ZAR
Singapúrskur dalur   SGD
Mexíkóskur pesi   MXN
Maltnesk líra   MTL
Tyrknesk líra   TRY
Króatísk kúna   HRK
Indversk rúpía   INR
Búlgarskt lef   BGN
Tékknesk króna   CZK
Brasilískt ríal   BRL


Nánari upplýsingar veitir Sturla Pálsson framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs (sturla.palsson@sedlabanki.is) í síma 569-9638.


 

Nr. 44/2006
1. desember 2006 

Til baka