logo-for-printing

25. júlí 2006

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Samkvæmt 6. gr. í kafla nr. III um dráttarvexti í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, skulu dráttarvextir breytast 1. janúar og 1. júlí ár hvert. Dráttarvextir haldast því óbreyttir 23,5% til og með 31. desember 2006 sbr. vaxtatilkynningu nr. 6/2006 dags 14. júní 2006.

Í ljósi stýrivaxtahækkunar 6. júlí sl. hækka almennir vextir sem Seðlabanki Íslands auglýsir með hliðsjón af lægstu vöxtum skv. 4. gr. vaxtalaga. Frá og með 1. ágúst 2006 hækka vextir óverðtryggðra lána um 0,5% og verða 14,5%. Jafnframt hækka vextir verðtryggðra lána úr 4,6% í 4,85% frá sama tíma. Í kjölfarið hækka vextir af skaðabótakröfum úr 9,3% í 9,7%.

Tilkynning um vexti í heild (pdf-skjal 25 kb)

24. júlí 2006 

Til baka