logo-for-printing

17. október 2005

Breyttur 500 kr. seðill

Nýr og breyttur fimm hundruð króna seðill verður settur í umferð í dag, mánudaginn 17. október 2005. Nýi seðillinn er í flestum atriðum eins og hinn eldri, en á honum hafa þó verið gerðar endurbætur. Með þeim verður hann öruggari en eldri seðill. Auðveldara verður að greina nýja seðilinn og erfiðara að falsa hann. Eldri seðillinn er áfram lögeyrir, en verður tekinn úr umferð smám saman.

Útlitsbreytingar á nýja seðlinum felast í því að fyllt er að nokkru út í spássíur sem voru á eldri seðli og bætt við einum sýnilegum öryggisþætti, þ.e. öryggisþræði í litbrigðum. Horn nýja seðilsins eru styrkt með því að koma fyrir vatnsmerki í þeim. Vatnsmerkið styrkir pappírinn og gerir seðilinn endingarbetri. Auk þessa er á seðlinum reitur sem sést í útfjólubláu ljósi og fleiri öryggisþættir sem aðeins verða greindir með sérstökum búnaði. Kristín Þorkelsdóttir og Stephen A. Fairbairn, grafískir hönnuðir, teiknuðu eldri fimm hundruð króna seðilinn, og vann Kristín að nýrri gerð hans nú. Seðillinn er prentaður í seðlaprentsmiðju De La Rue plc. á Englandi.

Af eldri gerð seðilsins eru rúmlega 1,8 milljónir eintaka í umferð. Komið var að nýrri prentun, og var ákveðið að fjölga öryggisþáttum af því tilefni og færa útlit seðilsins að útliti fimm, tvö og eitt þúsund króna seðla. Prentaðar hafa verið átta milljónir nýrra fimm hundruð króna seðla. Kostnaður af upplaginu er rúmlega 74 m.kr. Endingartími fimm hundruð króna seðils hefur verið um ellefu mánuðir að jafnaði, og mun eldri gerð seðilsins hverfa úr umferð að mestu á næstu tólf mánuðum.

Á heimasíðu Seðlabanka Íslands er greint frá öryggisþáttum fimm hundruð króna seðilsins og þar er einnig að finna margháttaðan annan fróðleik um íslenska seðla og mynt fyrr og nú.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 569 9600.

Nr. 30/2005
17. október 2005

Til baka