logo-for-printing

29. september 2005

Seðlabanki Íslands hækkar vexti

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,75 prósentur frá og með 4. október n.k. í 10,25%. Seðlabankinn hefur þá hækkað stýrivexti sína um 4,95 prósentur síðan í maí 2004. Aðrir vextir bankans verða einnig hækkaðir um 0,75 prósentur frá 1. október n.k. Í ársfjórðungsritinu Peningamálum sem bankinn birtir á heimasíðu sinni í dag eru færð rök fyrir nauðsyn þess að hækka vexti nú.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnar í síma 569-9600.

Til baka